|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Svokallaðir trigger punktar geta myndast í öllum vöðvum líkamans og hvar sem er í viðkomandi vöðva. Þeir geta ýmist verið virkir eða óvirkir, en ef þeir eru virkir senda þeir gjarna frá sér leiðniverk og jafnvel doða á annað líkamssvæði allt eftir því í hvaða vöðva og hvar í vöðvanum þeir eru staðsettir. Auk þessa geta þeir valdið einkennum eins og flökurleika, svima, sjóntruflunum, skertri heyrn, eyrnasuði, brjóstsviða, verk í ennis- og kinnholum ásamt stíflum svo eitthvað sé nefnt. Þá draga þeir einnig úr styrk vöðva og eðlilegu úthaldi. Óvirkur eða hulinn trigger punktur getur verið í vöðva án nokkurra einkenna en síðan breyst við minnsta álag og orðið virkur.
Trigger punktar geta hrjáð fólk á öllum aldri en þeir myndast vegna streituviðbraga líkamans, við t.d. almennt álag, ranga líkamsbeitingu, einhæfar hreyfingar, áverka, skyndilegar kuldabreytingar og almenna streitu. Þá geta skekkjur í líkamanum eins og hryggskekkja eða mislangir fótleggir t.d. líka orsakað og viðhaldið trigger punktum.
Hægt er að finna fornar lesningar og lýsingar á því sem við í dag köllum trigger punkta en í seinni tíð hefur að mestu verið stuðst við ómetanlegar rannsóknir og þróunarvinnu dr. Janet Travell (1901-1997) og David Simons (1922- ) sem sent hafa frá sér tvo doðranta sem kallast “Myofascial Pain and Dysfunction – volume 1 og 2. Þeirra aðferðir til að meðhöndla trigger punkta fólst annars vegar í því að sprauta í þá staðdeyfingarefni (procain) og hinsvegar með því að nota deyfisprey og teygjur. Það var síðan á áttunda áratug síðustu aldar að Bonnie Prudden kom með þá kenningu að hægt væri að meðhöndla trigger punkta með staðbundnum þrýstingi og hafa meðhöndlarar, svo sem nuddarar, sjúkraþjálfarar og fleiri notast við þá aðferð með góðum árangri.
Auk þess að meðhöndla trigger punkta og freista þess að uppræta þannig þau óþægindi sem þeim fylgja, leitast meðhöndlarinn við að hjálpa skjólstæðingnum að finna út úr því hvað varð til þess að þeir mynduðust og þannig að koma í veg fyrir að þeim sé viðhaldið.
Sigrún Þórólfsdóttir
|
|
|
|
|
9 mánuðir - Heilsumiðstöð | Sími 533 3433 | Hlíðasmára 2 | 201 Kópavogur | info@9manudir.is |  |
|