( zoneterapi / reflexologi )  


Íslenska hugtakið svæðanudd felur í sér tvö erlend hugtök, annars vegar zoneterapi sem þýðir svæðanudd og hins vegar reflexologi sem þýðir viðbragða- eða svæðameðferð.

Zoneterapi er talin upprunnin frá Egyptum og byggir á örvun miðtaugakerfisins. Einnig er talið að m.a. Indverjar og norðuramerískir Indíánar hafi lagt stund á svæðanudd fyrr á öldum.
Hugmyndin sem liggur að baki er sú að líkamshlutar eigi sér samsvörunarsvæði á fótunum, að líkaminn og líkamlegt ástand endurspeglist í fótunum.

Reflexologi á hins vegar rætur sínar að rekja til kínverskrar heimspeki eða hugmynda, kenninga um orkubrautir og punkta á orkubrautunum. Þar er unnið að því að örva sérstaka punkta (nálastungupunkta) og virknin því hnitmiðaðri og sérhæfðari.



Amerískur læknir, Dr. William H. Fitzgerald, endurvakti svæðanuddið (zoneterapi) á öndverðri síðustu öld og gaf út bók um efnið árið 1917 ásamt kollega sínum Edwin Bowers. Það kom svo í hlut nema Dr. Fitzgeralds, Eunice Ingham, að fínvinna tæknina og einnig gaf hún út bækur um svæðanudd árið 1938. Þær bækur hafa meðal annars verið þýddar og gefnar út á íslensku.

Hanne Marquardt, þýskur hjúkrunarfræðingur og „heilpraktiker“ var nemi hjá Eunice Ingham. Hún opnaði fyrsta svæðanuddskólann í Evrópu í Þýskalandi árið 1970. Hún er almennt talin hafa verið fyrst til að kynna fræðin fyrir Evrópubúum.

Árið 1982 gáfu Danirnir Solveig Lauborg svæðanuddari og Per Lauborg nálastungufræðingur út bók um svæðanudd þar sem þau sýndu fram á tengsl zoneterapi og reflexologi.

Svæðanudd er heildrænt meðhöndlunarform sem gegnum ákveðin svæði/punkta á iljum og fótum er talið getað leiðrétt orkuójafnvægi í líkamanum. Meðferðin gefur viðkomandi slökun og deyfir verki þar sem hún losar um endorfín sem er líkamans eigið verkjalyf.

Smelltu


Svæðanudd er almennt talið styrkja varnarkerfi líkamans og örva eiginleika líkamans til að lækna sjálfan sig, auka á vellíðan og gefa aukinn andlegan og líkamlegan þrótt. Nokkuð hefur verið gert í því að rannska virkni svæðanudds.

Ekki hefur með vísindalegalegum hætti tekist að sýna frammá hvernig svæðanudd virkar. Það er engin bein taugatenging milli viðbragðapunktanna undir fætinum og hinna innri líffæra. Því hallast menn einkum að því að svæðanudd virki eftir hinum austrænu hugmyndum þ.e. í gegnum orkubrautirnar svokölluðu.

Í nokkrum af nágrannalöndum okkar er svæðanudd viðurkennt meðferðarform í hinu opinbera heilbrigðiskerfi, m.a. á krabbameinsdeildum og svokölluðum verkjadeildum („smerteklinikker“). Á sumum stöðum er mögulegt að fá tilvísun frá heimilislækni til löggilts svæðanuddara og margir vinnustaðir bjóða starfsmönnum sínum upp á svæðanudd (eða nudd) með reglulegu millibili.

Hver nuddtími miðast við klukkustund.


Meira um svæðanudd:
Association Of Reflexologists
Danish Reflexologists Association
http://www.reflexology.org/
http://www.britreflex.co.uk/
http://www.reflexology-usa.net/facts.htm
http://www.reflexology-usa.org/
http://www.reflexology.org.nz/
http://www.reflexologybc.com/

GMS


Þrívíddarsónar Heilsumiðstöð Tímapantanir Staðsetning
9 mánuðir - Heilsumiðstöð | Sími 533 3433 | Hlíðasmára 2 | 201 Kópavogur | info@9manudir.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun