Osteópatía  

Smelltu Osteópatía er ný heilbrigðisstétt hér á landi. Osteópatar eru sérmenntaðir í að greina og meðhöndla stoðkerfisvandamál. Osteópatía getur hjálpað við flest vandamál sem stafa frá stoðkerfi líkamans, hvort sem um er að ræða langtíma- eða bráðavandamál. 

Í fyrsta tíma, sem er yfirleitt lengri en framhaldstímar, er farið ítarlega í sögu þess sem verið er að meðhöndla og þróun á vandamáli viðkomandi. Því næst er farið yfir sjúkrasögu, veikindi og meiðsl og athugað hvort tengsl séu þar á milli eða hvort tilvísun til læknis sé ráðlögð. Síðan er framkvæmd bæklunar- og hreyfifræðileg próf, auk annara klínískra prófa ef þörf er á. Áður en meðhöndlun fer fram sjúmdómsgreinir osteópatinn, en við sjúkdómsgreiningu eru einnig aðrar rannsóknir hafðar til hliðsjónar, svo sem röntgen, segulómum og blóðprufur. Þessi ítarlegi starfsmáti er viðhafður til að komast sem næst orsök vandamálsins og að sníða meðhöndlunina persónulega að einstaklingnum ef vandamálið er viðeigandi til meðhöndlunar hjá osteópata. Í framhaldstímum er framvinda metin í hvert skipti og meðhöndlunin sniðin út frá því.

Osteópati meðhöndlar svo til einungis með því að beita höndum á liðamót og mjúkvefi, með það í huga að endurheimta fyrra heilbrigði, blóðflæði eða óhindruð taugaboð. Til þess eru notaðar meðal annars hnykkingar og aðrar sérhæfðar hreyfiaðferðir til liðlosunar, liðtog, vöðvateygjur, og ýmsar aðrar vöðvaslökunaraðferðir. Markmiðið með meðferðinnni er að minnka verki, bæta samhæfingu hreyfinga og leiðrétta líkamsskekkjur. Auk þess að liðka stirð líkamssvæði og styrkja svæði sem eru of hreyfanleg. Það eru einmitt þessar fjölbreyttu aðferðir við greiningu og meðhöndlun sem gera það vert að reyna osteópatíu þótt aðrar aðferðir hafi ekki ráðið bót á vandamálinu. Einnig gefur osteópati ráð um æfingar og breytingar á lífs- og starfsháttum ef við á til að flýta fyrir árangri.

Í Bretlandi er osteópatía, líkt og á íslandi, löggild starfstétt, þar sem „The General Osteopathic Council (GOsC)“ setur verklagsreglur um starfshætti. Bresk rannsókn frá árinu 2006, sem var stjórnað af GosC sýndi að fjórðungur þeirra sem tóku þátt í rannsókninni höfðu farið til osteópata. Af þessum fjórðungi voru 80%  „ánægðir“ eða „mjög ánægðir“ með meðhöndlunina sem þau fengu.  Áætlað er að í Bretlandi fari meira en 25.000 manns til osteópata á hverjum degi. Auk þess geta breskir heimilislæknar vísað á osteópata, því samkvæmt lögum flyst ábyrgðin alfarið yfir á osteópatan. Þar sem osteópatar eru menntaðir í að sjúkdómsgreina innan ramma osteópatíunnar.

Osteópatía er löggild heilbrigðisstétt skv. reglugerð 229/2005.

Meira um ostópatíu:
http://www.osteopatia.is/
http://www.osteopathy.org/
http://www.osteopathy.org.uk/

FNH 2008


Þrívíddarsónar Heilsumiðstöð Tímapantanir Staðsetning
9 mánuðir - Heilsumiðstöð | Sími 533 3433 | Hlíðasmára 2 | 201 Kópavogur | info@9manudir.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun