Nudd (heilsunudd)  

Nudd er samheiti margra meðhöndlunarforma sem öll eiga það sameiginlegt að vera byggð á snertingu. 

Nudd er sennilega jafngamalt manninum en engar áreiðanlegar heimildir eru til um uppruna þess. Talið er til að Egyptar til forna hafi lagt mikið upp úr heitum böðum og nuddi.

Til eru fjöldamargar gerðir af nuddi, sem hverri og einni er ætlað að mæta þörfum nuddþegans. Má þar nefna klassískt nudd, heildrænt nudd, sogæða nudd, orkubrauta nudd, þrýstipunkta nudd, zhiatsu, austurlenskt nudd, steinanudd, andlitsnudd og íþróttanudd svo eitthvað sé nefnt.

Algengt er að fólk leiti til nuddara til slökunar eða vegna verkja í stoðkerfi. Oft leitar fólk sér ekki hjálpar fyrr en í óefni er komið, en mælt er með að allir komi í nudd með ákveðnu millibili til fyrirbyggjandi meðferðar þar sem nudd er talið hafa jákvæð áhrif á ónæmiskerfið.

Nuddið er alltaf ákveðið í samráði við nuddþegann og eftir hans óskum og álagssvæðum.

Nuddmeðferðin getur beinst að einhverjum ákveðnum líkamspörtum, gjarnan á baki, öxlum og hnakka en einnig getur meðferðin beinst að öllum líkamanum. Í lok nudds ætti að hafa slaknað á vöðvum og verkjum, blóðflæði aukist og losnað um streitu á sál og líkama.

Hver nuddtími miðast við klukkustund.
 

Rannsóknir hafa sýnt frammá að nudd:

  • Styrkir sjálfstraustið
  • Dregur úr kvíða og vinnur gegn þunglyndi
  • Dregur úr magni streituhormóna í blóði
  • Veitir fólki öryggi í samskiptum við aðra
  • Fólk lærir að þekkja sjálft sig betur og sættast við líkama sinn
  • Eykur námshæfni
  • Dregur úr streitu og hjálpar fólki til að sofna
  • Eykur blóðflæði til vefja
  • Linar verki frá stoðkerfi
  • Linar höfuðverk


Meira um nudd:
http://www.miami.edu/touch-research/
http://www.massagetherapy.com/learnmore/index.php
http://rehabilitation-products.medical-supplies-equipment-company.com/PPF/page_ID/102/article.asp
http://www.holisticonline.com/herb_home.htm
http://www.aboutmassage.com/index.htm
http://www.mayoclinic.com/
http://www.massageenvy.com/1059.aspx

MS 2008


Þrívíddarsónar Heilsumiðstöð Tímapantanir Staðsetning
9 mánuðir - Heilsumiðstöð | Sími 533 3433 | Hlíðasmára 2 | 201 Kópavogur | info@9manudir.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun