|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
 Nálastunga eða akupunktur (Aku = húð, punktur = stunga) er hluti svokallaðrar hefðbundinnar kínverskrar læknisfræði (Traditionel Chinese Medicin, skammstafað T.C.M.). Fræðin eru margra þúsund ára gömul en vitneskjan um þau barst fyrst til Evrópu á 17. öldinni, að því er talið er, þegar franskir trúboðar í Kína sendu frá sér numdir af hrifningu sögur um ágæti þessarar lækningaaðferðar til baka til Frakklands. Nálstunga barst fyrir alvöru til vesturlanda í kringum 1970 í tengslum við för Nixons þáverandi Bandaríkjaforseta til Kína.
TCM er byggð á kenningum og heimspeki Taóismans og á sennilega rætur sínar að rekja frá því um 2000 árum fyrir krist. Tæknin hefur því verið notuð í þúsundir ára og hefur þróast í tímanns tönn. Samkvæmt fræðunum tengjast innri líffæri líkamanns yfirborði líkamans gegnum flókið net ganga sem nefnd hafa verið orkubrautir (channels). Orkubrautirnar næra alla hluta líkamanns með lífsorkunni ,,Qi". Þær tengjast yfirborði líkamanns (húðinni) á hinum svokölluðu nálastungupunktum og það er í gegnum þessa punkta sem nálastungufræðingurinn vinnur við að koma jafnvægi á líkamann með nálaroddinum.
Á líkamanum má finna 12 svokallaðar aðalorkubrautir og 6 aukaorkubrautir. Þessar orkubrautir fylgja ákveðnu mynstri á yfirborði húðarinnar og geta tengst innbyrðis. Á hverri orkubraut eru svo áveðnir punktar sem má meðhöndla til að bæta líkamlegt og andlegt ástand meðferðarþegans. T.C.M. byggir á þeirri kenningu að sjúkdómar og þjáningar hvers konar stafi af orkuójafnvægi í líkamanum, og að með því að stinga nálum á sérstaka staði á líkamanum (nálastungupunkta) megi hafa áhrif á þetta ójafnvægi. Þar með örva nálarnar líkamann til að lækna sjálfan sig.
Í gömlum kínverskum skrifum eru nálstungupunktarnir upphaflega 365 að tölu, samsvarandi 365 dögum ársins, en síðar hefa bæst við fleiri punktar. Hver punktur hefur eigið nafn, númer og eiginleika.
Nálastungufræðingurinn meðhöndlar sjúklinga sína út frá þeirri staðreynd að engir tveir eru eins og að sami sjúkdómur getur birst í ýmsum myndum hvað orkulegt ójafnvægi varðar, þannig að sjúklingar með sama sjúkdóm fá ekki endilega sömu meðhöndlun.
Síðustu árin hefur notkun nálastungu aukist í hinu opinbera heilbrigðiskerfi, en oftar en ekki er það þá einfaldað form nálastungunnar sem notað er. Þá er um að ræða venjubundna meðhöndlun eða recept meðhöndlun þar sem sjúklingar með sama sjúkdóm eða með sömu einkenni fá sömu meðhöndlunina. Þetta er í samræmi við vestræna lyflæknisfræði þar sem sömu meðhöndlun er ævinlega beitt við ákveðnum sjúkdóm.
Nálastungu er oft beitt við:
- Verkjum frá stoðkerfi
- Ýmsum meðgöngutengdum vandamálum
- Verkjameðferð í fæðingu
- Höfuðverk/mígreni
- Verk frá þrenndartaug (trigeminus)
- Svitavandamálum (t.d. á meðgöngu og við tíðahvörf)
- Streitu
- Til að hætta að reykja
- Tennis- og golf olnboga
- Til að styrkja varnarkerfi líkamans
- Við ófrjósemi karla og kvenna
- Vandamálum tengdum tíðahring kvenna og blæðingum
- Magakveisu hjá ungbörnum
- Meltingarvandamálum
Gms 2008
Meira um nálastungu W.H.O acupuncture.com acupuncture Today internethealthlibrary.com Meridian Regulatory Acupuncture - MRA American Academy of Medical Acupuncture - AAMA Nudd |
|
|
|
|
9 mánuðir - Heilsumiðstöð | Sími 533 3433 | Hlíðasmára 2 | 201 Kópavogur | info@9manudir.is |  |
|