Íþróttanudd byggir á svipuðum grunni og klassískt vöðvanudd en er sérhæft fyrir íþróttamenn. Nudd er ævagamalt meðhöndlunarform og hefur verið notað í mismunandi menningarheimum síðustu 3000 árin svo vitað sé. Í dag hafa þróast ýmis afsprengi nuddformsins og þeirra á meðal er íþróttanudd. Oftast er unnið á staðbundnum svæðum þar sem þörf er á nuddi hverju sinni. Ef þörf þykir er sérhæfðum vöðvateygjum blandað inn í nuddið. Sé réttri nuddtækni beitt er íþróttanudd áhrifarík meðferð til að losa um spennu í vöðvum og til að koma jafnvægi á stoðkerfi líkamanns. Nuddið dregur úr þreytu, bólgum og stífum vöðvum og eykur liðleika.
Íþróttanuddarinn þarf að þekkja vöðva, hreyfi- og beinafræðina ýtarlega ásamt því að kunna skil á líffæra- og lífeðlisfræði. Með skilningi á þessum þáttum getur þjálfaður íþróttanuddari hjálpað íþróttamönnum, dönsurum, leikurum og öðrum þeim sem vinna með líkamann, að koma í veg fyrir meiðsli sem gætu komið upp vegna ofnotkunar vöðvahópa og/eða rangrar líkamsstöðu.
Hver nuddtími miðsat við klukkustund.
Rannsóknir benda til að íþróttanudd hafi jákvæð áhrif á eftirfarandi þætti:
- Flýtir til við losun úrgagnsefna úr vöðvum (mjólkursýru)
- Eykur eða minnkar eftir atvikum teygjanleika (e. tonus) í vöðvum
- Við áverka á stoðkerið þá flýtir nudd fyrir bata
- Andleg vellíðan sem eykur styrk og úthald
Frekara lesefni:
Callaghan MJ The role of massage in the management of the athlete: a review. Br J Sports Med 27(1) (1993) Ernst E 'Does post-exercise massage treatment reduce delayed onset muscle soreness? A systematic review. BrJ Sports Med, 32:212-214 (1998)
Galloway SDR and Watt JM 'Massage provision by physiotherapists at major athletic events between 1987 and 1998. Br J Sports Med 38: 235-237 (2004)
Goats GC 'Massage - the scientific basis of an ancient art: part 1. The techniques. BrJ. Sports Med, 28 (3), (1994)
Goats, GC 'Massage - the scientific basis of an ancient art: part 2. Physiological and therapeutic effects. BrJ Sports Med 28:3 (1994)
Gupta A, Goswami A, Sodhukhan AK et al 'Comparative study of lactate removal in short term massage of extremities, active recovery and passive recovery period after supramaximal exercise sessions. J Sports Med 17:106-110(1996)
Hemmings B, Smith M, Graydon J et al 'Effects of massage on physiological restoration, perceived recovery, and repeated sports performance. Br J Sports Med, 34: 109-115(2000)
Hilbert JE, Sforzo GA and Swensen T The effects of massage on delayed onset muscle soreness. Br J Sports Med 37:72-75 (2003)
Hemmings BJ 'Massage effects on regeneration, recovery and performance in sport. Physiotherapy In Sport, Volume XXII, No 2, (July 1999).
Ogai R, Yamane M, Matsumoto T et al 'Effects of petrissage massage on fatigue and exercise performance following intensive cycle pedaling. BrJ Sports Med, 2 April (2008)
Robertson A, Watt JM, and Galloway SDR 'Effects of leg massage on recovery from high intensity cycling exercise. BrJ Sports Med 38: 173-176 (2004)
MS 2009 |