|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Hugtakið HypnoBirth hefur verið kallað sjálfsdáleiðslutækni í fæðingu á íslensku.
Í stuttu máli felst í þessari aðferð að barnshafandi konur ná valdi á hugsunum sínum sem gerir þeim kleift að takast á við fæðingu án þess að sársauki, hræðsla og vanmáttur yfirskyggi upplifun þeirra. Upphafsmaður aðferðarinnar er Marie F. Mongan dáleiðslusérfræðingur. Hún hefur helgað líf sitt því að vinna með konur á öllum aldri í öllum þjóðfélagshópum og stutt við bakið á ótalmörgum fæðandi konum. My dream is that every woman, everywhere, will know the joy of a truly safe, comfortable and satisfying birthing for herself and her baby (Marie F. Mongan).
HypnoBirth er bæði heimsspeki er varðar barnsfæðingar og kennsluaðferð ákveðinnar tækni sem beitt er í fæðingarferlinu. Grunnhugmynd í HypnoBirthing fæðingum er sú að barnsburður og barnsfæðing sé náttúrulegt og eðlilegt ferli sem kvenlíkaminn er skapaður til að kunna og geta. Með því að beita HypnoBirth tækni í fæðingu hjálpar það verðandi mæðrum til að taka á sínum innri styrk til að fæða barn bæði varlega og blíðlega, en þó jafnframt á öflugan og ánægjulegan hátt. Talsmenn tækninnar lofa ekki að konur finni ekki fyrir neinum óþægindum við fæðinguna en telja þó að allt að 95% kvenna geti fætt án óþæginda með því að beita sjálfsdáleiðslutækni í fæðingu.
http://hypnobirthing.com/childbirth_classes.htm
Kennt er á miðvikudögum klukkan 18.00 - 20.30 Hvert námskeið byggist á fimm kennslukvöldum. Hver tími er um tvær og hálf klukkustund. Taka verður allar fimm kennslustundirnar í réttri röð þar sem hver tími byggir á hinum fyrri. Verð: 30.000 kr fyrir par Innifalin eru námskeiðsgögn og léttar veitingar.
Kennari á námskeiðinu er Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir (skrásettur HypnoBirth kennari frá HypnoBirthing Institute). Netfang: kristbjorg@9manudir.is sími: 6946141
Næstu námskeið: 2. maí - laus pláss
Um HypnoBirth: http://www.youtube.com/watch?v=oYgL0ZlHaUo Sjá umfjöllun í fjölmiðlum: http://www.dv.is/lifsstill/2010/10/15/sarsaukalaus-og-edlileg-faeding/
Nudd |
|
|
|
|
9 mánuðir - Heilsumiðstöð | Sími 533 3433 | Hlíðasmára 2 | 201 Kópavogur | info@9manudir.is |  |
|