|
|
|
|
|
|
|
Hvernig fer sónarskoðun fram?
|
|
|
|
|
|
|
Hver tími tekur á bilinu 25-40 mínútur. Mismunur á tíma skýrist af því að stundum liggur barnið heppilega og er strax hægt að taka af því myndir og þá er tíminn skiljanlegra styttri en stundum liggur barnið í óheppilegri stellingu til skoðunar og því þarf að eyða nokkrum tíma í að fá það til að færa sig.
Eftir kynningu á því sem framundan er leggst konan á bekk og geli er sprautað yfir magann. Síðan er nema rennt yfir magann og hinir verðandi foreldrar geta fylgst með myndum sem birtast á skermi. Byrjað er á hefðbundinni skoðun í tvívídd, það er að segja í svart hvítu og síðan er skoðað í þrívídd. Ef barnið hreyfir sig eru hreyfingarnar teknar upp í fjórvídd (realtime). Bilið milli barnsins og nemans hefur áhrif á gæði myndanna. Þessvegna getur fyrirlægur ristill, fitulag á kviðvegg og staðsetning fylgju haft áhrif á útkomu mynda. Magn legvatns er einnig mikilvægt, því meira legvatn því betra. Þó er lega barnsins alltaf mikilvægust. Það er erfiðara að fá góðar myndir ef barnið liggur með kollinn þétt uppað legveggnum eða fylgjunni. Foreldrar fá mynd af barninu á pappír og allar myndir bæði í 3D-og 4D á CD disk. Í sumum tilfellum er ekki mögulegt að ná hreyfimyndum þó hægt sé að taka kyrrmyndir. |
|
|
|
|
9 mánuðir - Heilsumiðstöð | Sími 533 3433 | Hlíðasmára 2 | 201 Kópavogur | info@9manudir.is |  |
|