Hvenær er best að skoða?  

Hægt er að skoða barnið í þrívídd/fjórvídd alla meðgönguna, en engar skoðanir eru gerðar hjá 9 mánuðum ehf. fyrir meðgönguviku 22 eða eftir meðgönguviku 36.

Hvenær fólk velur að koma fer svolítið eftir því hverju verið er að sækjast eftir, en flestir velja að koma í vikum 26-30. Meðgöngulengdin hefur eingöngu áhrif á þroska barnsins á myndunum en ekki skýrleika myndanna. Þannig getum við fengið jafn skýrar myndir í viku 22 og í viku 36. Þó viljum við biðja mjög þéttvaxnar konur um að koma ekki fyrr en í viku 26-27 í fyrsta lagi.

Það eru nokkur atriði sem hafa ber í huga þegar er sónarskoðað. Til að fá góðar myndir er mikilvægt að það sé nóg af legvatni umhverfis barnið. Lega barnsins hefur áhrif á hvernig myndir er hægt að fá, sem og myndgæðin. Barnið getur snúið andlitinu innávið eða haft hendurnar og/eða fæturnar fyrir andlitinu. Ef barnið hefur höfuðið þétt upp við legvegg eða fylgju getur verið vandkvæðum bundið að ná góðum myndum með þessari tækni. Einnig getur fitulag á kviðvegg móður og staðsetning fylgju haft áhrif á gæði mynda.

Ef börnin hreyfa sig föngum við þau augnablik. Sú tækni hefur verið kölluð fjórvídd eða rauntímamyndir (realtime).


Þrívíddarsónar Heilsumiðstöð Tímapantanir Staðsetning
9 mánuðir - Heilsumiðstöð | Sími 533 3433 | Hlíðasmára 2 | 201 Kópavogur | info@9manudir.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun