Er sónarskoðun hættuleg?  

Ekki hefur verið sýnt framá skaðsemi sónarskoðana á börn í móðurkviði né á mæður á trúverðugan vísindalegan hátt. Á íslandi var byrjað að sónarskoða börn í móðurkviði árið 1975. Þá var eingöngu sónarskoðað ef eitthvað benti til þess að um frávik væri að ræða. Síðan árið 1986 hefur öllum barnshafandi konum verið boðin sónarskoðun.
Í dag eru yfirleitt eru tvær sónarskoðanir í boði á meðgöngu til fóstugreiningar. Annarsvegar hnakkaþykktarmæling i vikum 11-14 og í vikum 19-20 almenn greining fósturgalla.

Rétt er að benda foreldrum á að afla sér upplýsinga um sónarskoðanir áður en ákveðið er að nýta sér tilboðin sem eru fyrir hendi.

Sónartækið okkar er af gerðinni Voluson 70 PRO. Sem er sónartæki í háum gæðaflokki og uppfyllir öll öryggisskilyrði sem slíkt tæki þarf að uppfylla. Voluson tækin eru leiðandi í heiminum á svið fósturrannsókna og gefa einstaklega skýrar myndir af börnum í móðurkviði.

Þrívíddarsónar Heilsumiðstöð Tímapantanir Staðsetning
9 mánuðir - Heilsumiðstöð | Sími 533 3433 | Hlíðasmára 2 | 201 Kópavogur | info@9manudir.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun