|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Samkvæmt tilmælum frá Landlæknisembættinu ber að upplýsa alla þá er koma í sónarskoðun hjá 9 mánuðum ehf. að ekki er um að ræða sónarskoðun til greiningar á fósturgöllum. Þar meðtalin er vaxtarsónar. Engar sónarskoðanir eru gerðar hjá 9 mánuðum ehf. fyrir viku 22 og sett er það skilyrði fyrir skoðun hjá okkur að konur hafi farið í sónarskoðun í viku 18-20 þar sem aðalgreining fósturgalla fer fram. Mikilvægt er að foreldrar geri sér grein fyrir því að skýrleiki og gæði mynda í þrí-og fjórvídd er háð ýmsum þáttum og ekki hægt að tryggja neina útkomu hvað myndirnar varðar. Atriði sem hafa áhrif á myndgæðin eru til dæmis vefjaþéttni móður, lega og stelling barns, staðsetning fylgju, meðgöngulengd, hvort kollur sé mjög djúpt skorðaður í grind, legvatnsmagn og fitulag á kviðvegg móður, fyrirlægur ristill eða örvefur og/eða hnútar á fyrirlægum vef. |
|
|
|
|
9 mánuðir - Heilsumiðstöð | Sími 533 3433 | Hlíðasmára 2 | 201 Kópavogur | info@9manudir.is |  |
|